Íslenska U18 ára landslið drengja vann í dag lokaleik liðsins á Norðurlandamótinu í Södertalje í Svíþjóð.
Ísland mætti Noregi og vann með minnsta mun, 86:85, en þetta var fyrsti sigur strákanna á mótinu í fjórum leikjum. Noregur vann þrjá leiki og hafði fyrir leikinn gegn Íslandi aðeins tapað gegn Finnlandi.
Norðmenn voru með sex stiga forskot eftir fyrsta leikhluta sem endaði 28:22. Íslensku strákarnir komu sterkir inn í annan leikhluta og komust yfir eftir aðeins þrjár mínútur og í hálfleik var liðið fimm stigum yfir, 49:44.
Liðin skiptust á að leiða í þriðja leikhlutanum en Ísland var yfir, 71:69, þegar honum lauk og eftir góða frammistöðu í fjórða leikhluta vann liðið með einu stigi, 86:85.
Thor Grissom var atkvæðamestur í íslenska liðinu með 14 stig, Lars Erik Bragason skoraði níu stig og tók átta fráköst og Birkir Hrafn Eyþórsson skoraði tíu stig og tók fjögur fráköst.