ÍR fékk gamlan samherja fyrirliðans

Jacob Falko er nýr liðsmaður ÍR-inga.
Jacob Falko er nýr liðsmaður ÍR-inga. Ljósmynd/Binghamton

ÍR-ingar hafa náð sér í bandarískan leikmann fyrir baráttuna í úrvalsdeild karla í körfuknattleik næsta vetur.

Sá heitir Jacob Falko, leikur stöðu bakvarðar og kemur frá Binghamton-háskólanum í Bandaríkjunum en þar lék hann eitt tímabil með núverandi fyrirliða ÍR, Hákoni Erni Hjálmarssyni.

ÍR-ingar endurheimtu úrvalsdeildarsætið sem þeir misstu vorið 2023 með því að vinna umspil 1. deildarinnar í vetur, eftir að hafa endað í öðru sæti deildarinnar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert