Úrvalsdeildir karla og kvenna í körfubolta munu fá nýtt nafn en næsta tímabil hefst 1. október hjá konunum og 3. október hjá körlunum.
Deildirnar munu nú bera nafnið Bónusdeildin. Bónus verður einn af aðal samstarfsaðilum KKÍ og mun einnig styðja við landsliðs- og afreksstarf KKÍ.
KKÍ þakkaði Subway fyrir gott og öflugt samstarf á meðan úrvalsdeildirnar báru nafn Subway undanfarin ár, í tilkynningu frá KKÍ í dag.