Annar Spánverji á Sauðárkrók

Paula Canovas leikur með Tindastóli.
Paula Canovas leikur með Tindastóli.

Tindastóll heldur áfram að styrkja kvennalið sitt fyrir baráttuna í úrvalsdeildinni í körfuknattleik í vetur og hefur nú fengið annan spænskan leikmann í sínar raðir.

Það er Paula Canovas sem hefur nú samið við Skagfirðingana en hún er 24 ára leikstjórnandi. Þar með hafa tveir spænskir leikmenn komið til Tindastóls á síðustu dögum en félagið var áður búið að semja við Lauru Chahrour.

Tindastóll er nýliði í úrvalsdeildinni í vetur og leikur þar í fyrsta skipti í 24 ár.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert