Valur fær leikmann frá Ítalíu

Alyssa Cerino leikur með Val næsta vetur.
Alyssa Cerino leikur með Val næsta vetur.

Alyssa Cerino, kanadísk körfuknattleikskona með ítalskt vegabréf, er gengin til liðs við Valskonur og leikur með þeim næsta vetur.'

Alyssa er 27 ára framherji, 1,84 m á hæð, og lék með Scrivia í ítölsku B-deildinni í vetur en þar var hún með 14 stig og 13 fráköst að meðaltali í leik. Hún lék með háskólaliði Carleton Ravens í Kanada áður en hún fór í atvinnumennsku.

Kanadamaðurinn Jamil Abiad tók við þjálfun Valsliðsins í sumar og þekkir vel til nýja leikmannsins. Á miðlum Vals segir Jamil að hún sé mjög fjölhægur leikmaður og smellpassi inn í þann körfubolta sem hann vilji að liðið spili.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert