Haukar styrkja sig

Diamond Battles í leik með Georgia háskólanum.
Diamond Battles í leik með Georgia háskólanum. Ljósmynd/Georgia háskólinn

Hin bandaríska Diamond Battles hefur skrifað undir samning við Hauka í úrvalsdeild kvenna í körfuknattleik.  

Battles er 24 ára gömul og er bakvörður sem hefur spilað víða í heiminum. Hún hefur leikið með Georgia háskólanum og síðan liðum í efstu deild í Grikklandi, Svíþjóð og Mexíkó.  

„Mér líst mjög vel á Diamond og er viss um að hún eigi eftir að standa sig mjög vel í Haukatreyjunni,” sagði Emil Barja, þjálfari Hauka.  

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert