Keflvíkingar styrkja sig

Jarelle Reischel hefur samið við Keflavík.
Jarelle Reischel hefur samið við Keflavík. Ljósmynd/Keflavík

Körfuknattleiksdeild Keflavíkur hefur gengið frá samningi við Jarelle Reischel og mun hann spila með liðinu á næstu leiktíð.

Reischel er með bandarískt og þýskt vegabréf. Hann er stór og stæðilegur, tveggja metra hár framherji.

Kemur hann til Keflavíkur frá Bremerhaven þar sem hann var liðsfélagi Hilmars Smára Henningssonar, en liðið lék í B-deild Þýskalands á síðustu leiktíð.

Reischel skoraði 14 stig, tók fjögur fráköst og gaf þrjár stoðsendingar að meðaltali í leik á síðustu leiktíð.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert