Frá Slóvakíu til Njarðvíkur

Julius Brown leikur með Njarðvík næsta vetur.
Julius Brown leikur með Njarðvík næsta vetur.

Njarðvíkingar hafa fengið til liðs við sig bandaríska körfuknattleiksmanninn Julius Brown fyrir næsta keppnistímabil.

Brown er 24 ára leikstjórnandi eða skotbakvörður sem lék sitt fyrsta tímabil sem atvinnumaður með Iskra Svit í Slóvakíu síðasta vetur og var þar með 16 stig og fimm stoðsendingar í leik að meðaltali. Þar áður spilaði hann með West Texas-háskólanum í Bandaríkjunum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert