Þór fær Frakka

Amandine Toi er komin í Þór.
Amandine Toi er komin í Þór. Ljósmynd/Þór Akureyri

Franski leikmaðurinn Amandine Toi tekur slaginn með Þór Akureyri á komandi tímabili í úrvalsdeild kvenna í körfubolta.

Amandine er 26 ára franskur leikstjórnandi og kemur til Akureyrar frá Frakklandi þar sem hún spilaði með Toulouse á síðasta tímabili.

Hún er 178 sentímetrar á hæð og var í háskólaboltanum í Bandaríkjunum með Virgina áður en hún fór til Toulouse.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert