Landsliðsmaðurinn skiptir um lið

Jón Axel Guðmundsson í leik með islenska landsliðinu.
Jón Axel Guðmundsson í leik með islenska landsliðinu. mbl.is/Kristinn Magnússon

Jón Axel Guðmundsson, landsliðsmaður í körfubolta, hefur fært sig um set á Spáni og gengið til liðs við San Pablo Burgos. 

Jón gengur til liðs við félagið frá Alicante en bæði lið leika í næstefstu deild Spánar. 

Jón Axel átti gott tímabil á síðustu leiktíð með Alicante og skoraði tólf stig að meðaltali. Hann er 27 ára gamall bakvörður frá Grindavík sem hefur áður leikið með Frankfurt og Crailsheim í Þýskalandi, Bologna og Pesaro á Ítalíu.

San Pablo Burgos leikur í Burgos sem er 175 þúsund manna borg, um 250 km norður af Madríd.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert