Snýr aftur til Íslands

Brittanny Dinkins lék vel með Keflavík.
Brittanny Dinkins lék vel með Keflavík. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Körfuknattleiksdeild Njarðvíkur hefur gengið frá samningi við hina bandarísku Brittanny Dinkins og mun hún leika með liðinu á komandi leiktíð.

Hin þrítuga Dinkins þekkir vel til Íslands því hún lék með Keflavík frá 2017 til 2019 og svo með Fjölni á síðasta ári. Varð hún bikarmeistari með Keflavík árið 2018.

Njarðvík fór alla leið í úrslit Íslandsmótsins á síðasta tímabili en varð að sætta sig við silfur eftir tap gegn Keflavík.   

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert