Stjörnulandslið Bandaríkjanna rústaði Jókernum

Stephen Curry var stigahæstur í liði Bandaríkjanna.
Stephen Curry var stigahæstur í liði Bandaríkjanna. AFP/Ethan Miller

Bandaríkin burstuðu Serbíu, 105:79, í vináttulandsleik þjóðanna í körfubolta karla í Abu Dhabi í gær. 

Jafnt var eftir fyrsta leikhluta, 28.28, en í öðrum og þriðja leikhluta valtaði bandaríska liðið yfir það serbneska. 

Stephen Curry var stigahæstur hjá Bandaríkjunum með 24 stig en Bam Adebayo skoraði 17 og Anthony Edwards 16. 

Nikolaj Jokic var sem áður aðalkallinn hjá Serbíu og skoraði 16 stig ásamt því að taka ellefu fráköst. 

Bæði lið undirbúa sig fyrir Ólympíuleikana í París en þau mætast einmitt í fyrsta leik 28. júlí. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert