Dæmdi undanúrslitaleik á EM

Davíð Tómas Tómasson, körfuboltadómari, til hægri.
Davíð Tómas Tómasson, körfuboltadómari, til hægri. mbl.is/Kristinn Magnússon

Davíð Tómas Tómasson körfuknattleiksdómari er á meðal dómara á Evrópumóti U20 ára karla sem stendur yfir í Póllandi og lýkur á morgun.

Hann fékk í dag eitt af stærstu verkefnunum á mótinu þegar hann var í dómaratríóinu sem dæmdi undanúrslitaleik mótsins á milli Belgíu og Slóveníu.

Slóvenía vann þar öruggan sigur, 91:79, eftir að hafa verið yfir í hálfleik, 60:36. Slóvenar mæta því Frökkum í úrslitaleik mótsins á morgun en Grikkir og Belgar leika um bronsverðlaunin.

Ísland spilar um þrettánda sætið af sextán liðum í A-deildinni og mætir þar liði Tyrklands á morgun en það er jafnframt hreinn úrslitaleikur um áframhaldandi sæti í A-deild því þrjú neðstu liðin falla niður í B-deildina.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert