Englendingurinn áfram í Njarðvík

Dwayne Lautier-Ogunleye í leik með Njarðvík síðasta vetur.
Dwayne Lautier-Ogunleye í leik með Njarðvík síðasta vetur. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Enski körfuboltamaðurinn Dwayne Lautier-Oungleye hefur framlengt samning sinn við körfuknattleiksdeild Njarðvíkur og leikur áfram með liðinu næsta vetur.

Dwayne er 28 ára gamall bakvörður, fæddur í London, og kom til Njarðvíkur fyrir síðasta tímabil frá Swans Gmunden í Austurríki. Áður lék hann með Den Bosch í Hollandi, Bergamo, Udine og Latina í ítölsku B-deildinni, Poitiers í frönsku B-deildinni og enska liðinu Bristol Flyers. Þá lék hann með bandarísku háskólaliði í fjögur ár.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert