LeBron James fór mikinn undir lok leiks þegar að Bandaríkin unnu heimsmeistara Þýskalands, 92:88, í vináttulandsleik þjóðanna í körfubolta í Lundúnum í kvöld.
LeBron skoraði síðustu ellefu stig Bandaríkjanna og tryggði liðinu sigurinn.
Hann var einnig stigahæstur í liðinu með 20 stig ásamt sex fráköstum og fjórum stoðsendingum.
Stephen Curry skoraði þá 13 stig og Anthony Edwards 11.
Franz Wagner skoraði mest fyrir Þýskaland eða 18 stig.
Bæði lið undirbúa sig fyrir Ólympíuleikana í París síðar í þessum mánuði en Þjóðverjar mæta Japan í fyrsta leik og Bandaríkin Serbíu.