Hættir eftir mánuð í starfi af persónulegum ástæðum

Jóhann Árni Ólafsson er hættur hjá Hetti.
Jóhann Árni Ólafsson er hættur hjá Hetti. Ljósmynd/UMFG

Jóhann Árni Ólafsson mun ekki stýra karlaliði Hattar í körfubolta ásamt Viðari Erni Hafsteinssyni á næsta tímabili. 

Frá þessu greinir félagið á samfélagsmiðlum en Jóhann Árni var tilkynntur hjá félaginu fyrir einum og hálfum mánuði og átti að hefja störf í ágúst.

Jóhann Árni átti einnig að taka við sem yfirþjálfari yngri flokka en hefur hætt af persónulegum ástæðum. 

Höttur segir það vera mikil vonbrigði en að félagið er strax farið í leit að nýjum meðþjálfara. 

Hann var áður aðstoðarþjálfari silfurliðs Grindavíkur. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert