Eitt síðasta púslið hjá Keflavík

Wendell Green í leik með Auburn-háskóla.
Wendell Green í leik með Auburn-háskóla. Ljósmynd/Auburn Wire

Bandaríski körfuknattleiksmaðurinn Wendell Green Jr. hefur samið við Keflvíkinga um að leika með þeim á komandi keppnistímabili.

Green er 22 ára gamall leikstjórnandi sem kemur úr bandaríska háskólaboltanum en þar lék hann fyrstu tvö árin með Eastern Kentucky Golonels og seinni tvö árin með Auburn Tigers en með þessum liðum skoraði hann í kringum 13-15 stig að meðaltali í leik og átti 4-5 stoðsendingar.

Þaðan fór hann til Novi Pazar í Serbíu í janúar á þessu ári þar sem hann skoraði 20,8 stig að meðaltali í leik. Þegar tímabilinu þar lauk færði hann sig til Dóminíska lýðveldisins og spilaði þar með Indios de San Francisco.

Keflvíkingar segja á samfélagsmiðlum sínum að með þessu séu bæði lið þeirra að verða  fullskipuð fyrir næsta tímabil.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert