Strákarnir hefja leik á morgun

Birgir Leó Halldórsson er í íslenska hópnum
Birgir Leó Halldórsson er í íslenska hópnum Ljósmynd/FIBA

Á morgun, föstudag, hefur landsliðU18 ára drengja í körfubolta leik í B-deild Evrópumóts (EuroBasket) yngri landsliða. Mótið fram fer í Skopje í Norður-Makedóníu enÍsland mætir Sviss í fyrsta leik kl 14:00 að íslenskum tíma.

22 þjóðir taka þátt í B-deildinni í fjórum riðlum, Ísland leikurí riðli með Eistlandi, Sviss, Póllandi, Ungverjalandi og Kosovo. Eftir riðlakeppnina verður leikið um sæti.

16 þjóðir er í A-deild,  22 þjóðir í B-deild og 7 þjóðir í C-deild

Hægt er að sjá allt um mótið, dagskrá leikja, riðla og stöðu, lifandi tölfræði og opið beint streymi frá öllum leikjum á heimasíðu FIBA.

Lárus Jónsson er þjálfari U18 ára landsliðsins
Lárus Jónsson er þjálfari U18 ára landsliðsins Ljósmynd/Guðmundur Karl

Lárus Jónsson þjálfari liðsins hafði þetta að segja:

“Undirbúningur hefur gengið ágætlega fyrir EM þar sem það var góður stígandi í liðinu á Norðurlandamótinu í Svíþjóð. Við gerðum eina breytingu á hópnum þar sem Logi Guðmundsson kemur inn fyrir Arnór Helgason sem hefur átt við meiðsli að stríða. Við notuðum NM til þess að verða betri sem lið og nú fáum við að sjá hvernig liðið smellur saman í Skopje“. 

„Það er erfitt að segja til um hvar við stöndum miðað við hinar þjóðirnar en við teljum en við teljum okkur vera jafnoka Eista sem við vorum í hörku leik við á Norðurlandamótinu, aðrar þjóðir höfum við ekki séð spila. Fyrsti leikurinn okkar er 26. júlí á móti Sviss sem eru með okkur í riðli ásamt Eistum, Kosovo, Póllandi og Ungverjalandi”. Sagði Lárus. 

U18 drengja er skipaði eftirtöldum leikmönnum 

Ásmundur Múli Ármansson - Stjarnan

Birgir Leó Halldórsson - Sindri

Birkir Hrafn Eyþórsson - Selfoss

Frosti Valgarðsson - Haukar

Kristófer Breki Björgvinsson - Haukar

Lars Erik Bragason - KR

Logi Guðmundsson - Breiðablik

Lúkas Aron Stefánsson - ÍR

Magnús Dagur Svansson - ÍR

Stefán Orri Davíðsson - ÍR

Thor Grissom - Colony High School, USA

Viktor Jónas Lúðvíksson - Münster, Þýskaland

Þjálfari: Lárus Jónsson

Aðstoðarþjálfari: Ísak Máni Wium

Aðstoðarþjálfari: Friðrik Hrafn Jóhannsson

Sjúkraþjálfari: Alex Már Bjarkason

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert