Frá KR til Grindavíkur

Oddur Rúnar Kristjánsson í leik með Njarðvíkingum.
Oddur Rúnar Kristjánsson í leik með Njarðvíkingum. mbl.is/Kristinn Magnússon

Körfuboltamaðurinn Oddur Rúnar Kristjánsson er genginn til liðs við Grindavík á ný eftir tíu ára fjarveru.

Oddur lék með Grindvíkingum tímabilið 2014-15 en lék síðast í úrvalsdeildinni tímabilið 2022-23 og þá með Njarðvík, en þá var hann ein af bestu þriggja stiga skyttum deildarinnar.

Oddur, sem er 28 ára bakvörður, lék með uppeldisfélaginu KR í 1. deildinni á síðasta tímabili en hann hefur einnig spilað með Val, ÍR, Breiðabliki og Stjörnunni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert