Fyrirliðinn áfram hjá Grindavík

Ólafur Ólafsson hefur skrifað undir nýjan tveggja ára samning hjá …
Ólafur Ólafsson hefur skrifað undir nýjan tveggja ára samning hjá Grindavík. mbl.is/Kristinn Magnússon

Körfuknattleiksmaðurinn Ólafur Ólafsson hefur skrifað undir nýjan tveggja ára samning við Grindavík. 

Ólafur er fyrirliði liðsins og bróðir Jóhanns Þórs Ólafssonar, þjálfara liðsins. 

Fyrirliðinn verður 34 ára gamall seinna á árinu en hann er uppalinn hjá Grindavík og hefur leikið þar allan sinn feril á Íslandi. 

Grindavík hafnaði í öðru sæti á Íslandsmótinu í vor og er Ólafur staðráðinn í að skila titilinum heim, eða svo kemur fram í tilkynningu félagsins. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert