Heimamenn í Frakklandi höfðu betur gegn Brasilíu, 78:66, í körfubolta á Ólympíuleikunum í París.
Leikið var í Lille-borg en Frakkar og Brasilíumenn eru með Þjóðverjum og Japan í riðli. Þau mættust fyrr í dag en þar vann Þýskaland með 20 stigum, 97:77.
Vonarstjarna Frakka Victor Wembanyama skoraði 19 stig, tók níu fráköst og gaf tvær stoðsendingar.
Frakkinn Nicolas Batum skoraði einnig 19 stig en hjá Brasilíu skoraði Leonardo Meindl 14 stig.
Ástralía vann síðan Spán fyrr í dag, 92:80.