Liðsstyrkur á Egilsstaði

Viðar Örn Hafsteinsson er þjálfari Hattar.
Viðar Örn Hafsteinsson er þjálfari Hattar. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Bandaríski körfuknattleiksmaðurinn Courvoisier McCauley er genginn til liðs við Hött á Egilsstöðum. 

McCauley 26 ára gamall skotbakvörður sem lauk háskólaferlinum með Indiana State háskólanum. 

Á síðustu leiktíð lék hann í Lúxemborg þar sem hann skoraði 17 stig og tók fimm fráköst að meðaltali í leik. 

Hattarmenn komust í fyrsta sinn í úrslitakeppnina í vor en töpuðu í fyrstu umferð gegn Íslandsmeisturum Vals. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert