Farin til Grindavíkur

Ragnheiður Björk Einarsdóttir í leik með Haukum síðasta vetur.
Ragnheiður Björk Einarsdóttir í leik með Haukum síðasta vetur. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Körfuknattleikskonan Ragnheiður Björk Einarsdóttir er gengin til liðs við Grindvíkinga og leikur með þeim í úrvalsdeildinni á næsta keppnistímabili.

Ragnheiður er miðherji, 1,83 m á hæð, og lék með Breiðabliki og Haukum á síðasta tímabili en er uppalin hjá Hrunamönnum og lék þar í yngri flokkunum. Eftir það með Haukum og í háskóla í Bandaríkjunum. Hún á að baki marga leiki með yngri landsliðum Íslands.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert