Heldur áfram með Stjörnunni

Dagur Kár Jónsson í leik með Stjörnunni gegn Val.
Dagur Kár Jónsson í leik með Stjörnunni gegn Val. mbl.is/Kristinn Magnusson

Körfuknattleiksmaðurinn Dagur Kár Jónsson hefur samið við Stjörnuna um að leika áfram með liðinu á næsta keppnistímabili.

Dagur er uppalinn Stjörnumaður, 29 ára gamall bakvörður, og kom aftur til félagsins eftir átta ára fjarveru fyrir síðasta tímabil. Í millitíðinni lék hann með Grindavík, Flyers Wels í Austurríki, Ourense á Spáni og KR.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert