Pólskur liðsauki til Sauðárkróks

Tindastólskonur verða nýliðar í úrvalsdeildinni í vetur.
Tindastólskonur verða nýliðar í úrvalsdeildinni í vetur. mbl.is/Arnþór Birkisson

Edyta Falenczyk, körfuknattleikskona frá Póllandi, hefur samið við Tindastól um að leika með liðinu í úrvalsdeildinni á næsta keppnistímabili.

Hún hefur áður leikið hér á landi en hún spilaði eitt tímabil með Grindvíkingum í úrvalsdeildinni. Edyta er framherji, þrítug að aldri, og lék síðasta vetur með Ostrava í Tékklandi og þar á undan með Neptunas í Litháen.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert