Grindavík fær lykilleikmann Stjörnunnar

Kat­arzyna Trzeciak.
Kat­arzyna Trzeciak. Ljósmynd/Grindavík

Pólska bakvörðurinn Kat­arzyna Trzeciak er gengin til liðs við Grindavík í úrvalsdeild kvenna í körfubolta.

Trzeciak er 32 ára og skrifaði undir samning út tímabilið en hún kemur til liðsins frá Stjörnunni en hún var í lykilhlutverki þar og liðið komst alla leið í undanúrslit en töpuðu gegn Keflavík.

Hún skoraði rúm 16 stig, tók sex fráköst og er öflugur varnarmaður en hún stal að meðaltali tveimur boltum í leik.

Trzeciak er reynslumikill leikmaður og hefur spilað með pólska landsliðinu og leikið sem atvinnumaður bæði í heimalandi sínu og í Þýskalandi. Árið 2022 varð hún þýskur meistari með Herner.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert