Gerði grín að sínu framlagi á ÓL

Tyrese Haliburton spilaði 26 mínútur á Ólympíuleikunum.
Tyrese Haliburton spilaði 26 mínútur á Ólympíuleikunum. AFP/Aris Messinis

Tyrese Haliburton var ekki í stóru hlutverki í bandaríska körfuboltaliði karla sem varð ólympíumeistari um helgina.

Haliburton gerði grín að sjálfum sér á samfélagsmiðlinum X þar sem hann setti mynd af sér með gullverðlaununum.

„Þegar þú gerir ekkert í hópverkefninu en færð samt A,“ skrifaði Haliburton sem spilaði aðeins 26 mínútur á mótinu.

Bandaríkin sigruðu Frakka, 98:87, í úrslitaleiknum síðastliðinn laugardag.

https://www.mbl.is/sport/ol/2024/08/10/sautjanda_olympiugull_bandariska_lidsins/

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert