Durant eignast hlut í PSG

Kevin Durant.
Kevin Durant. AFP/Aris Messinis

Körfuknattleiksmaðurinn Kevin Durant, ólympíumeistari með bandaríska landsliðinu og leikmaður Phoenix Suns í NBA-deildinni, hefur eignast hlut í franska knattspyrnufélaginu París Saint-Germain.

ESPN greinir frá því að Durant hafi varið nokkrum milljónum bandaríkjadala til þess að gerast minnihlutaeigandi í félaginu.

Bandaríkjamaðurinn fjárfesti í félaginu í gegnum Arctos Sports Partners, sem er bandarískur fjárfestingasjóður sem á 12,5 prósenta hlut í PSG.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert