Daninn Zarko Jukic hefur komist að samkomulagi við nýliða ÍR í úrvalsdeild karla í körfuknattleik um að leika með liðinu á komandi tímabili.
Jukic lék vel með liðinu á síðasta tímabili þegar ÍR tryggði sér sæti á meðal þeirra bestu að nýju eftir eitt tímabil í 1. deild.
Hann er 31 árs kraftframherji sem er 201 sentimetri á hæð.