Fjölnir styrkir sig

Sæþór Elmar Kristjánsson er genginn til liðs við Fjölni.
Sæþór Elmar Kristjánsson er genginn til liðs við Fjölni. Ljósmynd/Fjölnir

Körfuknattleiksmaðurinn Sæþór Elmar Kristjánsson hefur skrifað undir samning við Fjölni um að leika með liðinu í 1. deild á komandi tímabili.

Sæþór Elmar lék á síðasta tímabili í úrvalsdeildinni með Hetti á Egilsstöðum. Hann er uppalinn í ÍR og hefur leikið þar stærstan hluta ferilsins.

„Það er mikill heiður að fá Sæþór til okkar,“ sagði Borche Ilievski þjálfari Fjölnis í tilkynningu.

„Hann er reynslumikill leikmaður sem er þekktur fyrir frábæra skothæfileika sína og við erum spenntir að fá hann í okkar leikmannahóp,“ bætti Borche við.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert