Tekur slaginn með Njarðvíkingum

Ena Viso verður áfram í Njarðvík.
Ena Viso verður áfram í Njarðvík. Eggert Jóhannesson

Danska körfuknattleikskonan Ena Viso hefur endursamið við Njarðvík og mun leika með liðinu á komandi tímabil.

Viso skoraði 12,8 stig, tók sjö fráköst og gaf 3,8 stoðsendingar að meðaltali í leik á síðustu leiktíð og átti sinn þátt í að Njarðvík fór alla leið í úrslitaeinvígi Íslandsmótsins á síðasta tímabili. 

Eru spennandi tímar fram undan hjá Njarðvík sem leikur loks í nýju húsi á komandi leiktíð. Þá er Einar Árni Jóhannsson tekinn við kvennaliðinu.  

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert