Letti til liðs við KR-inga

Jakob Örn Sigurðarson þjálfari KR hefur fengið liðsauka frá Lettlandi.
Jakob Örn Sigurðarson þjálfari KR hefur fengið liðsauka frá Lettlandi. mbl.is/Eggert Jóhannesson

KR-ingar hafa fengið til liðs við sig lettneska körfuboltamanninn Linards Jaunzems en hann kemur til Vesturbæjarliðsins frá Ventspils þar sem hann hefur leikið undanfarin þrjú ár.

Jaunzems er 28 ára gamall framherji, tveir metrar á hæð, og hefur leikið allan sinn feril í sameiginlegri úrvalsdeild Lettlands og Eistlands.

Hann var valinn besti leikmaður deildarinnar á síðasta tímabili en þá skoraði hann 16,5 stig og tók 7,7 fráköst að meðaltali í leik.

KR-ingar leika í úrvalsdeildinni á ný í vetur eftir eins árs fjarveru en þeir voru utan hennar í fyrsta skipti í sögunni á síðasta tímabili.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert