Murray framlengir við Denver

Jamal Murray í leik með Kanada gegn Bandaríkjunum.
Jamal Murray í leik með Kanada gegn Bandaríkjunum. AFP/Ethan Miller

Jamal Murray hefur skrifað undir nýjan samning við Denver Nuggets sem tryggir honum 244 milljónir bandaríkjadala á næstu fimm árum. Murray hefur myndað eitt besta tvíeyki NBA deildarinnar ásamt Nikola Jokic undanfarin ár.

Kanadamaðurinn varð fyrir alvarlegum hnémeiðslum árið 2021 en sneri aftur haustið 2022 og var lykilmaður Nuggets sem urðu NBA meistarar vorið 2023.

Murray gat lítið beitt sér vegna meiðsla í átta liða úrslitum deildarinnar í vor þegar Denver féll úr keppni eftir skemmtilega viðureign við Minnesota Timberwolves.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert