Njarðvíkingar styrkja sig

Alexander Smári Hauksson.
Alexander Smári Hauksson. Ljósmynd/UMFN

Körfuknattleiksdeild Njarðvíkur hefur samið við tvo leikmenn um að leika með karlaliðinu á komandi tímabili, þá Alexander Smára Hauksson og Isaiah Coddon.

Alexander Smári er tvítugur bakvörður sem hefur spilað fyrir yngri landslið Íslands. Hann lék síðast með Asker Aliens í norsku úrvalsdeildinni og þar áður í bandaríska háskólaboltanum.

Bakvörðurinn Coddon er 28 ára Bandaríkjamaður með íslenskt ríkisfang. Hann hefur áður leikið með Skallagrími, Haukum og nú síðast Álftanesi hér á landi.

Isaiah Coddon.
Isaiah Coddon. Ljósmynd/UMFN
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert