Liðsstyrkur í Breiðholtið

ÍR-ingar fá góðan liðsstyrk.
ÍR-ingar fá góðan liðsstyrk. mbl.is/Árni Sæberg

Slóvenski körfuknattleiksmaðurinn Matej Kovac er genginn til liðs við ÍR. 

Kovac kemur til ÍR frá St. Poelten í Austurríki en hann skoraði 17 stig og tók sex fráköst að meðaltali fyrir liðið á síðustu leiktíð. 

Slóveninn, sem er 28 ára gamall, hefur einnig spilað í næstefstu deild Spánar sem og í bandaríska háskólaboltanum. 

ÍR-ingar eru nýliðar í úrvalsdeild karla í körfubolta. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert