Shaquille í Stjörnuna

Stjörnumenn eru komnir með liðsauka frá Hollandi.
Stjörnumenn eru komnir með liðsauka frá Hollandi. mbl.is/Árni Sæberg

Hollenski körfuboltamaðurinn Shaquille Rombley hefur samið við Stjörnumenn um að leika með þeim á komandi keppnistímabili.

Shaq er 27 ára gamall miðherji, 2,03 metrar á hæð, og varð austurrískur meistari með Gunners Oberwart síðasta vetur.

Hann lék áður í neðri deildum Þýskalands og með liði Lincoln Memorial-háskólans í Washington DC í Bandaríkjunum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert