Stjarnan endurheimtir efnilegan leikmann

Viktor Jónas Lúðvíksson í leik með U18-ára landsliðinu.
Viktor Jónas Lúðvíksson í leik með U18-ára landsliðinu. Ljósmynd/FIBA

Körfuknattleiksmaðurinn Viktor Jónas Lúðvíksson er genginn aftur til liðs við uppeldisfélag sitt Stjörnuna eftir eins árs dvöl hjá þýska félaginu Münster.

Viktor Jónas er 18 ára gamall efnilegur framherji sem var í stóru hlutverki hjá U19-ára liði Münster á síðasta tímabili.

Hann hefur einnig verið í lykilhlutverki hjá U18-ára landsliði Íslands og lék með því á Norðurlandamóti og Evrópumóti í sumar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert