Justas í Þór - Franck farinn

Justas Tamulis er farinn í Þór.
Justas Tamulis er farinn í Þór. Eyþór Árnason

Þór Þorlákshöfn hefur samið við Litháann Justas Tamulis sem lék með Val á síðasta tímabili. Franck Kamgain er farinn frá félaginu.

Vísir greinir frá því að Kamgain sé farinn úr Þorlákshöfn en hann gekk til liðs við Þórsara frá nágrönnunum í Hveragerði í byrjun september.

Í hans stað kemur Tamulis en hann var í stóru hlutverki hjá Íslandsmeisturum Vals á síðustu leiktíð. Hinn þrítugi Tamulis skoraði 13,6 stig og tók 2,4 fráköst ásamt þremur stoðsendingum að meðaltali í leik í fyrra.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert