Leikið í Ljónagryfjunni í síðasta sinn

Njarðvíkurliðið hefur verið afar sigursælt í Ljónagryfjunni.
Njarðvíkurliðið hefur verið afar sigursælt í Ljónagryfjunni. Ljósmynd/Skúli B. Sigurðsson

Njarðvík leikur sinn síðasta leik í Ljónagryfjunni þegar liðið fær Grindavík í heimsókn í fyrstu umferð úrvalsdeildar kvenna í körfubolta í kvöld. 

Njarðvík er að færa sig úr Ljónagryfjunni í Stapagryfjuna sem er nýtt íþróttahús í bænum. 

Ljónagryfjan er sögufrægt íþróttahús en Njarðvík hefur verið afar sigursæl þar, bæði kvenna- sem og karlamegin. 

Leikurinn hefst klukkan 19.15 í kvöld. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert