Valur samdi við tvo leikmenn

Lea Gunnarsdóttir og Ingunn Erla Bjarnadóttir.
Lea Gunnarsdóttir og Ingunn Erla Bjarnadóttir. Ljósmynd/Valur

Körfuknattleiksdeild Vals hefur samið við tvo leikmenn sem leika munu með kvennaliðinu á nýhöfnu tímabili. Þær eru Ingunn Erla Bjarnadóttir og Lea Gunnarsdóttir.

Ingunn Erla er 19 ára gömul og kemur frá Ármanni þar sem hún hefur leikið undanfarin tvö tímabil. Er hún uppalin hjá Val og þjálfar til að mynda í yngri flokkum félagsins.

Lea er 21 árs bakvörður sem kemur frá KR, þar sem hún hefur verið lykilmaður í 1. deild undanfarin ár.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert