Garðbæingar með fullt hús stiga á toppnum

ÍR-ingurinn Jacob Falko í baráttunni í Garðabænum í kvöld.
ÍR-ingurinn Jacob Falko í baráttunni í Garðabænum í kvöld. mbl.is/Arnþór Birkisson

Stjarnan er með fullt hús stiga eða 6 stig á toppi úrvaldeildar karla í körfuknattleik eftir stórsigur gegn nýliðum ÍR, 117:88, í 3. umferð úrvalsdeildar karla í körfuknattleik í Ásgarði í Garðabæ í kvöld.

Stjarnan er eina lið deildarinnar sem hefur unnið fyrstu þrjá leiki sína, gegn ÍR, KR og Íslandsmeisturum Vals en ÍR bíður ennþá eftir sínum fyrsta sigri í deildinni í ár eftir töp gegn Stjörnunni, Tindastól og Grindavík.

Garðbæingar byrjuðu leikinn af krafti og leiddu með 17 stigum eftir fyrsta leikhluta, 28:11. Stjarnan jók forskot sitt í 22 stig í öðrum leikhluta og var staðan 56:34, Stjörnunni í vil, í hálfleik.

ÍR-ingum tókst að minnka forskot Stjörnunnar í 20 stig í þriðja leikhluta en lengra komust þeir ekki og Stjarnan fagnaði öruggum sigri.

Jase Febres skoraði 24 stig fyrir Stjörnuna og Ægir Þór Steinarsson 18 stig. Jacob Falko var stigahæstur hjá ÍR með 18 stig og sex fráköst.

Stjarnan - ÍR 117:88

Umhyggjuhöllin, Bónus deild karla, 17. október 2024.

Gangur leiksins:: 5:6, 11:9, 18:11, 25:11, 34:19, 39:22, 49:25, 56:34, 62:44, 67:53, 75:58, 83:63, 90:68, 101:74, 110:81, 117:88.

Stjarnan: Jase Febres 24/4 fráköst, Ægir Þór Steinarsson 18/4 fráköst/6 stoðsendingar, Shaquille Rombley 16/12 fráköst, Orri Gunnarsson 16/7 fráköst, Hilmar Smári Henningsson 14/4 fráköst, Júlíus Orri Ágústsson 13/4 fráköst/5 stoðsendingar, Viktor Jónas Lúðvíksson 7, Bjarni Guðmann Jónson 4/4 fráköst, Kristján Fannar Ingólfsson 3, Hlynur Elías Bæringsson 2.

Fráköst: 30 í vörn, 13 í sókn.

ÍR: Jacob Falko 18/6 fráköst, Matej Kavas 16/7 fráköst, Hákon Örn Hjálmarsson 15, Oscar Jorgensen 13, Zarko Jukic 12/6 fráköst/5 stoðsendingar, Tómas Orri Hjálmarsson 5, Aron Orri Hilmarsson 4, Magnús Dagur Svansson 3, Jónas Steinarsson 2.

Fráköst: 22 í vörn, 4 í sókn.

Dómarar: Davíð Tómas Tómasson, Bjarni Hlíðkvist Kristmarsson, Aron Rúnarsson.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert