Þurfti að hætta viðtali vegna slagsmála

Julian Champagnie og Tyler Herro eigast við í leik San …
Julian Champagnie og Tyler Herro eigast við í leik San Antonio Spurs og Miami Heat í gær. AFP/Megan Briggs

Körfuknattleiksmaðurinn Tyler Herro, leikmaður Miami Heat, gat ekki klárað sjónvarpsviðtal sem hann fór í eftir leik gegn San Antonio Spurs á undirbúningstímabili NBA-deildarinnar í gær af heldur óvenjulegri ástæðu.

Herro, sem skoraði 14 stig í 120:117-sigri Heat á Spurs, var að ræða við Kelly Saco hjá Bally Sports Sun þegar hann missti alfarið einbeitinguna við að sjá slagsmál í áhorfendastúkunni.

Var viðtalinu þá sjálfhætt en Herro hafði gaman af þessari óvæntu uppákomu. Myndskeið af því þegar viðtalinu lýkur snögglega má sjá hér:

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert