Meistarar í sjöttu tilraun

Leikmenn New York Liberty fagna meistaratitlinum í gær.
Leikmenn New York Liberty fagna meistaratitlinum í gær. AFP/Sarah Stier

New York Liberty varð í fyrsta sinn WNBA-meistari í körfuknattleik kvenna þegar liðið hafði betur gegn Minnesota Lynx, 3:2, í úrslitaeinvígi sem lauk með sigri í oddaleik, 67:62, í gær.

Sigurinn var afar kærkominn fyrir Liberty þar sem þetta var í sjötta sinn sem liðið kemst í úrslitaeinvígi WNBA-deildarinnar en í fyrsta sinn sem því tekst að vinna titilinn síðan félagið var stofnað árið 1997.

Liberty hafði tapað í úrslitum árin 2023, 2002, 2000, 1999 og 1997, en félagið var eitt af átta stofnliðum WNBA-deildarinnar árið 1997.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert