Tryggvi nýtti mínúturnar vel

Tryggvi Snær Hlinason í leik með Bilbao.
Tryggvi Snær Hlinason í leik með Bilbao. Ljósmynd/FIBA

Tryggvi Snær Hlinason átti góðan leik fyrir spænska liðið Bilbao þegar það vann öruggan sigur á Prievidza í J-riðli Evrópubikarsins í körfuknattleik í Slóvakíu í kvöld.

Bilbao er á toppi J-riðils með fullt hús stiga, sex, að loknum þremur umferðum.

Tryggvi Snær lét vel að sér kveða á þeim 14 mínútum sem hann lék í kvöld. Skorað Tryggvi Snær átta stig, tók sex fráköst og gaf eina stoðsendingu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert