Annar sigur Íslandsmeistaranna í röð

Kristinn Pálsson fagnar í kvöld en hann skoraði 15 stig.
Kristinn Pálsson fagnar í kvöld en hann skoraði 15 stig. mbl.is/Karítas

Íslandsmeistarar Vals höfðu betur gegn bikarmeisturum Keflavíkur, 104:80, þegar liðin áttust við í fjórðu umferð úrvalsdeildar karla í körfuknattleik á Hlíðarenda í kvöld.

Valur hefur nú unnið tvo af fyrstu fjórum leikjum sínum og tvo í röð en Keflavík hefur aðeins unnið einn.

Mikið jafnræði var með liðunum stóran hluta leiksins en Valur náði þó oftar naumri forystu.

Í fjórða og síðasta leikhluta sigldu Valsmenn hins vegar fram úr og unnu að lokum öruggan 24 stiga sigur.

Taiwo Badmus fór fyrir Val og var stigahæstur í leiknum með 28 stig og 11 fráköst. Kári Jónsson bætti við 21 stigi, 11 fráköstum og sjö stoðsendingum.

Wendell Green var stigahæstur hjá Keflavík með 20 stig og tíu fráköst.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka