LeBron fór illa með soninn (myndskeið)

James-feðgar ræða við fréttamann eftir leikinn við Minnesota.
James-feðgar ræða við fréttamann eftir leikinn við Minnesota. AFP/Allen Berezovsky

Feðgarnir Lebron og Bronny James skráðu sig í sögubækurnar í 1. umferð NBA-deildarinnar bandarísku í körfubolta er þeir urðu fyrstu feðgarnir til að spila saman í deildinni.

Í nýrri auglýsingu Nike fer LeBron ansi illa með soninn og fyllir bílinn hans af morgunkorni fyrir fyrsta leikinn og segir syninum að passa sig á því að verða ekki seinn.

Auglýsinguna kostulegu má sjá hér fyrir neðan.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert