Góð byrjun Lakers-manna

Anthony Davis fór mikinn fyrir Lakers-liðið í nótt.
Anthony Davis fór mikinn fyrir Lakers-liðið í nótt. AFP/Harry How

Los Angeles Lakers hafði betur gegn Phoenix Suns, 123:116, í bandarísku NBA-deildinni í körfubolta karla í Los Angeles í nótt. 

Lakers-liðið er búið að vinna fyrstu tvo leiki sína en Anthony Davis skoraði 35 stig, tók átta fráköst og gaf fjórar stoðsendingar. 

Hjá Phoenix var Kevin Durant atkvæðamestur með 30 stig, fjögur fráköst og sex stoðsendingar. 

Önnur úrslit:

Toronto Raptors - Philadelphia 76ers 115:107
Orlando Magic - Brooklyn Nets 116:101
New York Knicks - Indiana Pacers 123:98
Cleveland Cavaliers - Detroit Pistons 113:101
Atlanta Hawks - Charlotte Hornets 125:120
Milwaukee Bucks - Chicago Bulls 122:133
Houston Rockets - Memphis Grizzlies 128:108
Utah Jazz - Golden State Warriors 86:127
Portland Trail Blazers - New Orleans Pelicans 103:105

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert