Löguðu stöðuna með sigri

Martin Hermannsson er fyrirliði Alba Berlín.
Martin Hermannsson er fyrirliði Alba Berlín. mbl.is/Kristinn Magnússon

Martin Hermannsson og félagar í Alba Berlín réttu aðeins við stöðu sína í þýsku A-deildinni í körfubolta í dag með heimasigri gegn Braunschweig, 65:61.

Alba hafði tapað þremur af fyrstu fjórum leikjum í deildinni en mótherjarnir í Braunschweig höfðu unnið tvo af fyrstu þremur leikjum sínum.

Martin lék í 23 mínútur með Alba en hann skoraði sjö stig og átti fimm stoðsendingar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert