Tyrese Maxey átti sannkallaðan stórleik fyrir Philadelphia 76ers þegar liðið hafði naumlega betur gegn Indiana Pacers, 118:114, í framlengdum leik í NBA-deildinni í körfuknattleik í Indiana í nótt.
Maxey gerði sér lítið fyrir og skoraði 45 stig og var þar með langstigahæstur í leiknum. Næstur á eftir honum kom nafni hans Tyrese Haliburton sem skoraði 22 stig fyrir Indiana.
LA Clippers vann sterkan sigur á Golden State Warriors, 112:104, í San Francisco.
Ivica Zubac og James Harden skoruðu báðir 23 stig fyrir Clippers. Zubac var öflugur í frákastabaráttunni og tók 18 fráköst ásamt því að gefa sex stoðsendingar. Harden gaf 11 stoðsendingar og tók sjö fráköst.
Stigahæstur í leiknum var Andrew Wiggins með 29 stig fyrir Golden State.
Úrslit næturinnar:
Indiana – Philadelphia (frl.) 114:118
Golden State – LA Clippers 104:112
Brooklyn – Milwaukee 115:102
Portland – New Orleans 125:103
Oklahoma City – Atlanta 128:104