Ráku sjö þjálfara á einum mánuði

Stephanie White er ein sjö þjálfara sem var rekin í …
Stephanie White er ein sjö þjálfara sem var rekin í október. AFP/David Berding

Stafsöryggi þjálfara í WNBA-deildinni í körfubolta vestanhafs er ekki mikið um þessar mundir, því félög deildarinnar hafa alls rekið sjö þjálfara á einum mánuði.

Stephanie White varð sjöundi þjálfarinn í deildinni til að fá reisupassann í október er Connecticut Sun leysti hana undan störfum í vikunni.

Los Angeles Sparks, Indiana Fever, Chicago Sky, Atlanta Dream, Dallas Wings og Washinton Mystics hafa einnig rekið þjálfara sína í mánuðinum.

Það sem gerir staðreyndina enn áhugaverðari er að það eru aðeins tólf lið í deildinni og fengu því rúmlega helmingur þjálfaranna reisupassann í sama mánuði.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert